Gítarinn í geymslunni

Gítarinn í geymslunni

Geymslan.

Innst í horninu. Bak við jólaskrautið, tjaldið sem enginn hefur nennt að brjóta saman síðan á Þjóðhátíð og kassann merktan „ÝMISLEGT“ með feitum túss.  Þar stendur hann.. gítarinn!

Keyptur í næntís. Spilaður af ástríðu í heilar þrjár vikur. Svo kom lífið. Vinnan. Börnin. Húsnæðislánið. Grillið sem þurfti að setja saman.

Þrjátíu ár. Strengirnir eru orðnir brúnir eins og gamlar símasnúrur. Rykið svo þykkt að það mætti aldursgreina það með kolefnisgreiningu. Ein köngulóin hefur komið sér upp þriggja herbergja íbúð í hljóðopinu. Með svölum.

Og þú stendur þarna með vasaljósið í símanum og hugsar:

„Æ. Þetta er löngu búið.“

Er þetta ekki bara orðið of seint??

Nei. En heilinn er snillingur í afsökunum. Hann framleiðir þær hraðar en Ölgerðin framleiðir Malt fyrir jólin.

„Ég er komin á þann aldur.“„Fingurnir á mér eru eins og bjúgu.“

„Allir sem kunna á gítar byrjuðu tólf ára í bílskúr í Keflavík.“

„Ég hef ekki TÍMA.“

Sama fólk og hefur tíma til að horfa á fjórar seríur af dönskum glæpaþáttum á einni helgi. Með textanum á.

Sannleikurinn er blákaldur og einfaldur.

Gítarinn veit ekkert hvenær þú fæddist. Hann spyr ekki um kennitölu. Hann er ekki með aldurstakmark eins og skemmtistaður á Austurvelli.

Hann vill bara að einhver taki hann upp.

Fullorðnir læra ekki verr. Bara öðruvísi.

Unglingurinn hefur tíma. Það er satt.

En þú hefur ýmislegt sem hann hefur ekki.

Þú veist hvaða tónlist þú elskar. Þú ert ekki að læra lag af því mamma skráði þig í tónlistarskólann. Þú ert að læra lagið sem var spilað í brúðkaupinu þínu.

Þú kannt að skipuleggja. Tíu mínútur á morgnana áður en húsið vaknar. Korter yfir kvöldfréttunum. Það dugar. Í alvöru.

Og þú skilur hlutina. Þegar þú veist AF HVERJU hljómur virkar, þá situr hann. Ekki bara í fingrunum, heldur í hausnum líka.

Ég hef kennt á gítar í yfir tuttugu ár. Fólki á öllum aldri.

Sumir af bestu nemendunum mínum byrjuðu eftir fimmtugt. Mættu með gítar sem leit út fyrir að hafa verið grafinn upp í fornleifauppgreftri á Þingvöllum.

Og spiluðu lög við varðeld nokkrum vikum seinna.

En gítarinn… er hann ekki ónýtur??

Sennilega ekki. Gítar sem hefur legið í dvala í þrjátíu ár er eins og björn í hýði. Svolítið úrillur. Stífur. Þarf smá ást og einn góðan kaffibolla.

Þetta þarf hann:

  • Nýja strengi. Gömlu strengirnir hafa lokið sinni þjónustu. Leyfðu þeim að fara með reisn.
  • Rykþurrku og smá dekur.  Köngulóin fær uppsagnarbréf. Með þriggja daga fyrirvara.
  • Stillingu.  Ókeypis stillir í símann og þá er gítarinn klár. (Mæli með appinu GuitarTuna).

Ef strengirnir standa skraufþurrir og langt upp frá hálsinum, eða ef sprunga hefur læðst inn einhvers staðar, þá borgar sig að kíkja með hann í hljóðfæraverslun. Oftast er það minna mál en þú heldur.

Og allt í einu stendur hann þarna. Glansandi. Stilltur. Tilbúinn. Eins og gamall vinur sem bankar upp á eftir þrjátíu ár og segir: „Jæja. Hvar vorum við?“

Áskorunin

Farðu í geymsluna. Í dag.

Sæktu hann. Já. Bak við jólaskrautið. Þú veist nákvæmlega hvar hann er.

Settu á hann nýja strengi. Stilltu hann. Og spilaðu einn hljóm. Bara einn. Em er fínn. Hann þarf bara tvo fingur.

Hann mun hljóma skelfilega. Fingurnir munu mótmæla eins og ungmennafélag á aðalfundi.

Alveg sama. Þrjátíu ár í geymslunni voru ekki tapaður tími. Þau voru bara langur forleikur.

Tónlistin hefur beðið nógu lengi. Ekki láta hana bíða í önnur þrjátíu.

Gleðilegt gítarspil!!

Viltu fá hjálp við fyrstu skrefin? Á gitarskolinn.is eru námskeið fyrir fullorðna byrjendur og þá sem eru að byrja aftur. Engin fyrri reynsla nauðsynleg.