Latest posts
-
Hello world!
Welcome to WordPress. This is your first post. Edit or delete it, then start writing!
-
Hljóma öll lögin eins? Nýtt námskeið: Grunnnámskeið 2

Hljóma öll lögin þín eins? Þú ert í góðum félagsskap. Á Grunnnámskeiði 2 gefum við hægri hendinni loksins eitthvað skemmtilegt að gera, með ásláttarmynstrum, dempun og takti sem láta hljómaspilið lifna við.
-
Gítarinn í geymslunni

Gítarinn í geymslunni. Bak við jólaskrautið. Þrjátíu ár, brúnir strengir og könguló með þriggja herbergja íbúð í hljóðopinu. Er þetta ekki bara orðið of seint?? Nei. Gítarinn spyr ekki um kennitölu. Hér er það sem þú þarft til að vekja hann og sjálfa þig upp á nýtt.
-
Gítarinn sem þú keyptir en lærðir aldrei á

Áttu gítar sem hefur staðið ónotaður í mörg ár? Þú ert langt frá því að vera ein(n) um það. Það er ekkert of seint að taka gítarinn aftur fram, rifja upp gömlu hljómana og byrja þar sem frá var horfið.
-
Spilum og syngjum saman í Heiðmörk 1. júlí

Opið samspilskvöld verður haldið í Heiðmörk Miðvikudaginn 1. júlí kl. 18:00 í samstarfi Gítarskólans, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Spiluð verða 10–15 auðveld lög og allir eru velkomnir, hvort sem þeir vilja spila, syngja með eða njóta stemningarinnar. Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg svo hægt sé að senda þátttakendum sönghefti fyrirfram.
-
Aldrei of seint að byrja – Frábær stemning á uppseldu námskeiði í Hafnarfirði!

Grunnnámskeiðinu í gítarleik, sem haldið var í Hafnarfirði 5. til 26. maí, er nú lokið og tókst það vægast sagt vel. Námskeiðið seldist upp og það var ótrúlega gaman að sjá þennan fjölbreytta hóp stilla saman strengi. Stemningin var hreinlega frábær frá fyrsta degi til þess síðasta! Það sem gladdi mig sérstaklega við þennan hóp…
-
Uppselt á grunnnámskeið í Hafnarfirði

Grunnnámskeiðið í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn seldist upp og gengur frábærlega. Meðalaldur þátttakenda er um 50 ár, sem sýnir að það er aldrei of seint að byrja eða rifja upp gamla takta! Áherslan er á skemmtilegt og pressulaust umhverfi þar sem við lærum undirstöðuatriðin. Vegna mikillar eftirspurnar verða fleiri námskeið í boði í sumar og haust.
-
Nokia stefið / hringitónninn

Þeir sem muna eftir Nokia símunum muna eflaust eftir einkennandi hringitón / stef sem var í þessum símum. Margir vita þó ekki að það er úr tónverki að nafni „Gran Vals“ eftir Spænskan gítarleikara, Francisco Tárrega. Hér kíkjum við á stefið og lærum það.
-
Gleðilegt nýtt gítarár!

Gleðilegt nýtt ár! Nýtt ár er eins og að setja nýja strengi á gítarinn; hljómurinn verður tærari og manni klæjar í fingurna að byrja. Hlökkum til að sjá ykkur og skapa nýja tónlist saman árið 2026.
-
Gítarinn sem félagi og vinur – ekki verkefni

Margir missa áhugann á gítarnum vegna þess að hann breytist í kvöð fulla af kröfum um árangur og æfingar. Í stað þess að vera dómari ætti gítarinn að vera félagi sem veitir skjól og gleði. Galdurinn felst í því að sleppa pressunni, spila á eigin forsendum – hvort sem það eru fimm mínútur eða einn…