Gítarinn sem þú keyptir en lærðir aldrei á

Kannski stendur hann inni í svefnherbergi, hangir uppi á vegg eða er í tösku einhvers staðar inni í skáp. Gítarinn sem þú keyptir af því þig hafði lengi langað til að læra að spila.

Þú byrjaðir kannski af krafti, fannst einhver kennslumyndbönd á YouTube, lærðir tvo eða þrjá hljóma og mögulega byrjunina á Smoke on the Water. Svo gerðist eitthvað.

Kannski varð of mikið að gera. Kannski vissirðu ekki alveg hvað þú áttir að læra næst. Eða kannski reyndist bara töluvert erfiðara að láta þessa blessuðu fingur gera það sem þú vildir en þú hafðir reiknað með.

Svo fór gítarinn til hliðar.

Ég hitti ótrúlega mikið af fólki sem á nákvæmlega þessa sögu.

„Ég byrjaði einu sinni að læra“

Þetta heyri ég mjög oft þegar fólk kemur á námskeið hjá mér.

„Ég á reyndar gítar.“

„Ég lærði aðeins þegar ég var yngri.“

„Ég kann nokkra hljóma en hef aldrei náð almennilega tökum á þeim.“

Og stundum hefur fólk átt gítarinn í mörg ár. Jafnvel áratugi.

Mér finnst ekkert skrýtið við það. Það er nefnilega töluvert auðveldara að kaupa gítar en að læra á hann.

Það er heldur ekkert sérstaklega erfitt að finna upplýsingar um hvernig eigi að spila. YouTube eitt og sér getur líklega kennt þér nánast allt sem hægt er að gera á gítar.

Vandamálið er frekar að vita hvað þú átt að læra, í hvaða röð og hvað þú átt að gera þegar eitthvað gengur ekki.

Þrír hljómar – hvað svo?

Þetta er oft staðurinn þar sem fólk festist á.

Þú ert búin/n að læra nokkur grip. Þú getur spilað G, C, D og Em ef þú færð nægan tíma til þess. En þegar þú reynir að spila lag þarftu allt í einu að skipta á milli þeirra á meðan hægri höndin á líka að halda einhverjum takti.

Þá verður þetta aðeins flóknara.

Svo finnurðu annað myndband sem kennir eitthvað allt annað. Og annað. Og annað.

Á endanum ertu kannski farin/n að safna kennslumyndböndum frekar en að læra á gítar.

Ég hef stundum líkt þessu við að allar bækurnar sem þarf til að læra læknisfræði séu væntanlega til á bókasafni. Það þýðir samt ekki að besta leiðin til að verða læknir sé að ganga þar inn, velja bók af handahófi og byrja að lesa.

Röðin skiptir máli.

Það sama á við um gítarinn.

Það er ekkert vandræðalegt við að byrja aftur

Stundum finnst fólki næstum eins og því hafi mistekist af því það keypti gítar fyrir tíu árum og lærði aldrei almennilega á hann.

Mér finnst það algjör óþarfi.

Ég hef kennt fólki sem er að halda á gítar í fyrsta skipti og líka fólki sem hefur átt gítar í áratugi. Fólki sem jafnvel lærði eitthvað sem unglingar og tekur upp þráðinn aftur áratugum síðar.

Og það skemmtilega er að hlutirnir eru oft fljótari að koma til baka en fólk býst við.

Gamli G-hljómurinn leynist kannski enn einhvers staðar í fingrunum. Rytminn sem þú lærðir fyrir tuttugu árum kemur aftur. Og ef ekkert kemur aftur?

Þá byrjarðu bara þar sem þú ert.

Það er ekkert flóknara en það.

„Ég vildi að ég hefði haldið áfram“

Þetta er önnur setning sem ég heyri reglulega.

Og ég skil hana mjög vel.

Ef þú keyptir gítar fyrir fimmtán árum er auðvelt að hugsa: Ef ég hefði bara haldið áfram þá, hvað gæti ég verið farin/n að geta í dag?

En það er eiginlega vitlaus spurning.

Þú getur ekkert gert við síðustu fimmtán ár. Þú getur hins vegar ráðið því hvort gítarinn stendur enn á sama stað eftir eitt ár.

Það þarf heldur ekkert stórátak.

Taktu hann fram. Stilltu hann. Rifjaðu upp einn hljóm. Finndu lag sem þig langar raunverulega að geta spilað. Gefðu þessu korter.

Og gerðu það svo aftur.

Ef þig langar að byrja aftur

Það eru margar leiðir til þess og það þarf ekki endilega að passa inn í ákveðna dagsetningu eða námskeið.

Hjá Gítarskólanum höldum við reglulega grunnnámskeið fyrir fullorðna þar sem farið er skipulega frá byrjun í hljóma, rytma og lög. Fyrir þau sem vilja frekar læra heima og á sínum hraða eru líka netnámskeið sem eru alltaf opin.

Aðalatriðið er samt ekki hvaða leið þú velur.

Það er að gítarinn fari aftur úr töskunni.

Kannski er kominn tími til.

Related posts