Það var heldur betur líf og fjör í Heiðmörk þegar við hittumst í Samspili Gítarskólans. Mætingin fór fram úr væntingum og það var sérstaklega gaman að sjá hversu margir mættu með gítarinn, tilbúnir að spila saman og eiga góða stund.
Samspilið var haldið í samstarfi Tónsmiðju Gítarskólans, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur og Heiðmörkin reyndist alveg frábær umgjörð utan um daginn.
Gítarinn er líka félagslegt hljóðfæri
Það er eitt að sitja heima og æfa sig, en allt annað að setjast niður með öðru fólki og spila saman. Þá fer maður að hlusta öðruvísi, halda takti með hópnum og finna hvernig gítarinn verður hluti af einhverju stærra.
Og það þarf alls ekki að vera atvinnumaður til að taka þátt í slíku samspili. Þvert á móti. Hugmyndin er að fólk á mismunandi stað í gítarnáminu geti komið saman, spilað lög sem það þekkir og haft gaman af.
Það var einmitt það sem gerðist í Heiðmörk. Góð mæting, mikið spilað, mikið hlegið og virkilega góð stemning.
Sjáðu stemninguna í myndbandinu
Myndbandið gefur líklega betri mynd af deginum en mörg orð geta gert. (Ljósm. og video: Þórir Benedikt / bjornsson.is)
Meira en bara gítarnám
Samspilið er hluti af því sem mig langar að byggja áfram upp í kringum Tónsmiðju Gítarskólans. Tónsmiðjan snýst auðvitað um að læra ný lög, bæta gítarleikinn og fá reglulega nýtt efni til að vinna með, en líka um að skapa tækifæri fyrir fólk til að nota það sem það er að læra.
Að spila með öðrum er stór hluti af því.
Það þarf nefnilega ekki alltaf að vera markmiðið að æfa meira eða verða betri. Stundum er markmiðið einfaldlega að taka gítarinn með sér, hitta gott fólk og spila nokkur lög saman.
Takk kærlega fyrir frábæra mætingu og stemningu í Heiðmörk og takk Ferðafélag Íslands og Skógræktarfélag Reykjavíkur fyrir samstarfið.
Við gerum þetta klárlega aftur!
Langar þig að vera með næst?
Samspilið er hluti af því sem við gerum í kringum Tónsmiðju Gítarskólans. Þar færðu reglulega nýtt efni til að spila, lög og æfingar, en líka tækifæri til að hitta aðra gítarleikara og spila saman.
Kynntu þér Tónsmiðjuna: gitarskolinn.is/tonsmidjan


