Strömm, strömm, strömm… og svo aftur strömm
Niður. Niður. Niður. Niður.
Það er þriðjudagskvöld í stofunni, gítarinn er kominn í fangið og hægri höndin hamast eins og rúðuþurrka á Hellisheiði í febrúar: niður, niður, niður, alveg þar til lagið klárast. Svo byrjar næsta lag, og það hljómar grunsamlega líkt því síðasta.
Hljómarnir eru komnir, það er ekki málið. G, C, D og Em sitja þar sem þeir eiga að sitja, og vinstri höndin er orðin nokkuð örugg með sig. En einhvern veginn renna útilegulagið, ballaðan og rokklagið saman í einn grautarlegan hljómavegg sem minnir meira á þvottavél á vindingu en tónlist.
Hljóma öll lögin þín eins??
Ef svarið er já ertu í mjög góðum félagsskap. Þetta er eitt það algengasta sem ég heyri eftir fyrsta námskeiðið, og það er fullkomlega eðlilegt. Þegar fyrstu hljómarnir eru að lærast fer ÖLL athyglin í vinstri höndina. Hægri höndin fær eitt einasta verkefni, að slá niður, og hún sinnir því af svívirðilegri samviskusemi.
En það er einmitt í hægri hendinni sem tónlistin lifnar við. Sami hljómagangur getur hljómað eins og varðeldur á Þingvöllum, kraftballaða á Eurovision-sviðinu eða blússandi bílskúrsrokk, allt eftir því hvernig þú strömmar.
Hvort heldurðu að vanti fleiri hljóma… eða betra strömm?
Einmitt.
Þess vegna hef ég sett saman Grunnnámskeið 2, þar sem allt snýst um áslátt og takt. Við lærum ólík ásláttarmynstur og hvenær hvert þeirra passar, áherslur og dempun sem gefa spilinu kraft og grúv, að spila veikt og sterkt, og lög í 4/4, 3/4 og 6/8. Við lærum þetta ekki með því að stara á blað, heldur með því að spila lög og hljómaæfingar saman, því þannig náum við best tök á þessu.
Námskeiðið hentar þeim sem hafa lokið Grunnnámskeiði 1, en líka þeim sem kunna helstu hljómana („vinnukonugripin“, Em, Am, C, G ofl.) og hafa kannski strömmað sömu lögin á nákvæmlega sama hátt árum saman.
Hvenær: þriðjudagana 17. og 24. nóvember og 1. og 8. desember, kl. 18:30–20:30
Hvar: í risinu hjá Ferðafélagi Íslands, Mörkinni 6
Verð: 29.900 kr. (Verð fyrir félagsmenn FÍ: 25.900 kr.)
Nánari upplýsingar og skráning: Grunnnámskeið 2: Ásláttur
Gefðu hægri hendinni loksins eitthvað skemmtilegt að gera.
Gleðilegt strömm!!


